Rænd af Símanum

Fyrir örfáum dögum uppgötvaði ég að Síminn rændi mig. Ef einhver hefði otað að mér hnífi úti á götu og heimtað af mér 5000 kall hefði ég kært það til lögreglu. Síminn rændi mig um sömu upphæð á löglegan hátt og því lítið annað hægt að gera en að skipta um fjarskiptafyrirtæki eina ferðina enn.

Hvernig fór Síminn að því að ræna mig?

Þegar ég skráði mig í ADSL-áskrift hjá Símanum á sínum tíma keypti ég pakka sem hét Góður. Innifalið í honum var 4 gígabæta gagnamagn. Fyrir þennan pakka borga ég 4.390 krónur í mánaðargjald. 

Nýlega varð ég vör við, að því er mér fannst, óeðilega háan símareikning og fór að spyrja makann - sem sór og sárt við lagði að hann héldi netnotkun sinni innan þeirra marka sem við værum að borga fyrir. Þegar málið var skoðað nánar kom í ljós að Síminn býður nú svokallaða Leið 1 fyrir 4.390 krónur á mánuði og inni í henni er 10 gígabæta gagnamagn. Það sem Símanum láðist hins vegar að gera var að uppfæra viðskiptavini sína úr Góðum upp í Leið 1. Sem sagt - Síminn stundar verðmismunun af grófustu gerð. Gömlu viðskiptavinirnir í Góðum borga sömu upphæð og nýir viðskiptavinir í Leið 1 fyrir 40% af því gagnamagni sem hinir fá!

Sé farið inn á heimasíðu Símans eru eingöngu upplýsingar um nýju áskriftarleiðirnar og því héldum við hjónin í góðri trú að við værum með 10 gígabæta gagnamagn eins og allir hinir og miðuðum netnotkun okkar við það.

Maður býður ekki þjófi til stofu og því um fátt annað að ræða en skoða hvað hin fjarskiptafyrirtækin hafa að bjóða.

 

 

 


« Síðasta færsla

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Senda í CCI | Hafðu samband