(Mis)notkun á bloggfærslum

Sjaldan eða aldrei hafa Íslendingar lesið jafn mikið og skrifað jafn mikið eins og nú. Líkja má áhrifum bloggsins á nútímafjölmiðlun við þau áhrif sem prentvél Jóhannesar Gútenbergs hafði á menningu Evrópuþjóða um 1440. Um 10.000 manns munu t.d. blogga þessa dagana á Moggablogginu. 

Bloggið hefur í æ ríkari mæli smokrað sér inn á síður dagblaðanna og orðið hluti af daglegu efni þeirra. Sama regla gildir hins vegar um bloggfærslur eins og aðrar fréttir - blaðamenn sía út þær færslur sem þeir telja merkilegri en aðrar. Sumum bloggurum er þar með gert hærra undir höfði en öðrum. Yfirleitt er alltaf vitnað í sama fólkið. Það er „opinion makers“, svo notuð séu orð Valþórs, ritstjóra á Blysfara, úr bókinni Drekum og smáfuglum eftir Ólaf Jóhann Sigurðsson. 

Þegar fjölmiðlar vitna í bloggfærslu gefa þeir rödd bloggarans vægi í þjóðfélagsumræðunni. Það er því mikilvægt að sú rödd sé ekki skrumskæld.

Síðustu vikuna hafa færslur af þessari bloggsíðu verið birtar í heild sinni á heimasíðu dómsmálaráðherra, verið notaðar í fjölmiðlapistli Ólafs Teits Guðnasonar í Viðskiptablaðinu og birtar að hluta í 24 stundum. 

Bloggari gerir ekki athugasemd við notkun dómsmálaráðherra eða Ólafs Teits á efni síðu sinnar þar sem færslurnar voru aðeins innlegg í umfjöllun þeirra sjálfra um tiltekin málefni. Bloggari fyrirbýður hins vegar að færslurnar séu klipptar til og teknar úr samhengi eins og 24 stundir gerðu í dag.

Fæstir lesendur hafa fyrir því að fletta bloggfærslu, sem birt er að hluta í dagblaði, upp á Netinu til að lesa hana í heild sinni. Niðurstaðan verður sú að túlkun hins almenna dagblaðalesanda á færslunni verður önnur en þeirra sem lesa hana alla. Engum er greiði gerður með slíkri (mis)notkun á færslum.   

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband