Kreppukrukkur og útskornir stólar í bátaskýli

Á heimili afa og ömmu var aldrei neinu hent. Niðri í þvottahúsi var stafli af krukkum sem vakti forvitni barnabarns. Barnið spurði eitt sinn ættingja til hvers allar þessar krukkur væru, og var þá svarað í hálfkæringi: „Þær eru fyrir kreppuna.“

Frá því í október hefur barnabarninu löngum verið hugsað til kreppukrukknanna í kjallaranum hjá afa og ömmu, og til útskorinna stóla í bátaskýli á Rock Island í Lake Michigan.

Afi og amma upplifðu tvær heimsstyrjaldir, frostaveturinn mikla og spænsku veikina, og kreppuna miklu á síðustu öld. Þau vissu, eins og aðrir af þeirra kynslóð, að ár geta verið mögur jafnt sem feit og voru undir það búin. Sú kynslóð sem fædd er á sjöunda áratugnum, og hélt um stjórnartauma stórfyrirtækja á síðustu árum, lifði hins vegar í þeirri blekkingu að aldrei yrði þörf á aukakrukkum. 

Á Rock Island í Lake Michigan stendur veglegt bátaskýli. Eigandi bátaskýlisins var Íslendingur, Hjörtur Þórðarson (sem síðar kallaði sig Chester Thordarson). Hann var fæddur á Íslandi 1867 en fluttist til Ameríku með foreldrum sínum sex ára gamall. Hjörtur var uppfinningamaður og fyrir kreppuna miklu 1929 var hann með um 2000 manns í vinnu í fyrirtæki sínu í Chicago, Thordarson Electric Manufacturing Company.

Eyjuna, Rock Island, keypti hann smátt og smátt frá 1910 og rétt fyrir kreppu hófst hann handa við að láta teikna og byggja glæsilegar byggingar þar. Bátaskýlið reis en aðrar byggingar, þar á meðal stórt bókasafn, urðu aldrei að veruleika. Í bátaskýlinu eru meðal annars húsgögn sem voru á sínum tíma skorin út af Halldóri nokkrum Einarssyni. 

Mynd af bátaskýli Hjartar hefði átt að prýða veggi fundarherbergja banka og stórfyrirtækja hér á landi til að minna menn sífellt á að gæfan er fallvölt og að stórir draumar geta í einu vetfangi orðið að engu. Sjálfur neyddist Hjörtur til að draga verulega saman seglin í kreppunni og selja a.m.k. eitthvað af uppfinningum sínum til General Electric.  

Árið 1965 keypti Wisconsin-ríki Rock Island og gerði hana að þjóðgarði. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband