21.12.2009 | 17:44
Helvítis fokking fokk RÚV
Dómgreindarleysi stjórnenda RÚV er algjört. Á undanförnum dögum hefur glumið „Helvítis fokking fokk“ í dagskrárauglýsingu frá Ríkissjónvarpinu sem sýnd hefur verið oft á dag, m.a. strax að loknu barnaefni stöðvarinnar. Í sömu auglýsingu hafa verið sýnd brot úr kvikmyndunum Mr. Brooks, sem bönnuð er börnum yngri en 16 ára, og óhugnanlegt atriði úr The Nightmare Before Christmas sem valdið getur ungum börnum mikilli skelfingu. Í sömu auglýsingu má einnig sjá dauðan jólasvein.
Það er skýlaus krafa foreldra að Ríkissjónvarpið sýni ekki dagskrárauglýsinguna óbreytta á þeim tíma sem börn eru fyrir framan sjónvarpið, þ.e.a.s. fyrir kl. 20 á kvöldin.

